Search
Myndskreytingar - Flóra
- Heiðdís Buzgò
- Apr 26, 2020
- 2 min read
Updated: Feb 12, 2022
Ath:
Femíníska veftímaritið Flóra er orðið að Vía.
Nú hef ég myndskreytt efni fyrir
veftímaritið Flóru í þriðja skipti.
Hvað er Flóra?
Flóra er óháð femínískt veftímarit sem stofnað var í September 2018.
Á bakvið Flóru stendur flokkur kvenna sem vill vanda til verka í gerð fjölmiðlaefnis og kallar eftir meiri fjölbreytni í fjölmiðlaflóru landsins.
4. útgáfa - Móðir jörð

Þá myndskreytti ég greinina Dropinn sem meitlar steininn eftir Sólu Þorsteinsdóttur.
Sú grein fjallar í stuttu máli um það langhlaup sem við þurfum að skrá okkur í til að rétta af þau loftlagsvandamál sem mannkynir hefur skapað. Hvatning til að gera það sem við getum til að leggja jörðinni lið og hvetja aðra til að gera slíkt hið sama.
Myndirnar fyrir þessa grein voru allar unnar sem hefðbundnar teikningar þótt þær séu allar gerðar í tölvu. Þas. að hver mynd er teiknuð á einn "layer" en ekki marga eins og venjan er í teikningu í teikniforritum.
Þær eru allar nokkuð einfaldar í sniði og teiknaðar eða málaðar með einum stafrænum bursta en ekki mörgum.
5. útgáfa

Greinin sem ég myndskreytti í þessarri útgáfu heitir Femínísk útópía hvað? og er eftir hana Ragnhildi Þrastardóttur.
Greinin fjallar um það hvað karlrapparar eru enn meira áberandi og betur liðnir í senunni en kvennrapparar. Hún talar um hvernig íslenskt rapp hefur þróast og hversu miklir kvennfordómar eru enn þar við líði þótt við teljum okkur vera mjög jafnréttissinnaða þjóð. Hún veltir því líka fyrir sér hvaðan þessi lenska kemur, að rappa á niðrandi hátt um konur, frá báðum kynjum.
Myndirnar eru allar af fólki sem minnst er á í greininni. Skissurnar eru allar blýantsskissur í skissubók, en öll eftirvinnsla og lokaútkoma er tölvuunnin.
6. útgáfa - Líkamar

Commentaires